|
|
19.09.2006 22:33:37 / Karitas
komin með nýja síðu www.123.is/karitass
»
28.07.2006 13:11:26 / Karitas
Frændfólk
mitt frá USA kom í gær til landsins, semsagt bróðir pabba,
kona hans og dóttir þeirra sem er þrítug. Ég hef ekki séð
frænku mína í 10 ár og það var svo gaman að hitta hana, það
var eins við höfðum hisst bara fyrir ári síðan. Náum svo
ótrúlega vel saman.
Það er öll
fjölskyldan að fara norður í dag yfir helgina og ákváðum við núna
fyrir klukkutíma að skella okkur bara líka.
Þannig að
norðurfararnir eru farnir norður á Akureyri að hafa það
gott.
See
you Karitas
»
17.07.2006 12:36:41 / Karitas
HÆ hæ
everyone....
Við erum að fara í útileigu á
laugardaginn þar sem góða veðrið verður. Endilega látið vita ef
ykkur langar að koma með, verður fullt af fólki og börn líka

see ya
KariTas
»
01.06.2006 20:36:11 / Karitas
Þá er það loksins komið á hreint
eftir að hafa hugsað mikið og farið í marga hringi. Ég er
hætt við að hætta í vinnunni og fæ að halda minni stöðu og
mínum vinnutíma. Ég ætla að fara í MK í fjarnám í Viðskipta
og fjármálagreinanám. Vona bara að ég komist inn

Annar er allt gott að frétta af okkur. Erum byrjuð að mála
pallinn og það er nú svolítið puð en ótrúlega gaman að vera úti og
mála öll fjölskyldan. Þurfum að taka hann svolítið í sundur og
eitthvað af því þetta er í fyrsta skiptið sem hann er málaður,
þetta verður rosa munur Set myndir inn seinna.
Svo eftir rúma viku koma Anna Gunna (systir
Kristmanns) og fjölskylda í heimsókn frá Bandaríkjunum. Það verður
æði, loksins fáum við að sjá nýjasta fjölskyldumeðliminn hann
Kristmann Ísak, sem er nú orðin rúmlega 1 árs. Verður algjört
æði að fá þau heim.
Endilega commentið og látið mig vita hver skoðar síðuna
mína, þá verður maður kannski duglegri að blogga ef maður veit
hverjir og hvað margir eru að koma hingað inn.
Love ya, KariTas
»
16.05.2006 20:27:03 / Karitas
Úff ég er lélegur bloggari...
En allavega er allt gott að frétta af mér. Var í fríi í vinnunni í
dag því ég fór í bústað í gær með Karen, Evu og Heiðdísi. Var
algjört æði, takk stelpur fyrir æðislega ferð. Eva fór út í dag til
Þýskalands í 2 vikur og Karen fer á fimmtudaginn til USA í 3 vikur.
Hvað er í gangi, það eru allir að fara til útlanda. Meiri að segja
Guðrún Drífa er að fara til Svíþjóðar á morgun. Góða ferð
stelpur og hafið það rosa gott.
Ég er enn að reyna að ákveða mig hvað ég á að fara að læra í haust,
ég snýst algjörlega í hringi. Það er ný skoðanakönnun hér til
hliðar, endilega svarið henni. Þið getið kannski hjálpað mér að
ákveða mig. Megið líka commenta hvað ykkur finnst.

Annars er maður bara að vinna og vera með fjölskyldunni. Yndislegt
líf. Erum að fara að mála pallinn og gera hann fínan fyrir
sumarið.
En hvað er málið með unglingana hérna á Íslandi í dag. Þau hanga
alltaf undir stiganum á blokkinni og reykja og svo á föstudaginn
kveiktu þau í dagblöðum og það var bara bál og ógeðsleg brunalygt,
við héldum að það væri búið að kveikja í sinu. Svo hanga þau
20-30 stk hérna út í sjoppu á kvöldin um helgar og eru bara með
kjaft. Ekki þorði maður þessu þegar maður var lítill. Maður
þorði varla að yrða á fullorðna fólkið. En tímarnir hafa breyst,
maður sér engan út í leikjum eins og maður var alltaf í. Munið þið
eftir, eina krónu og skotbolta...ohhh ég sakna þessa tíma, vildi
óska að tímarnir væru eins og maður sæi krakka úti að leika sér.
Jæja nóg um þetta...
Lofa að skrifa fljótt aftur, munið að svara könnuninni.

See you soon... 
»
27.04.2006 17:09:27 / Karitas
Ætlar einhver að djamma annaðkvöld? Föstudagskvöld.
»
23.04.2006 21:28:39 / Karitas
Jæja, loksins er ég búin að gera myndaalbúm. Endilega kíkið, er
að bæta inn í það aftur í tímann, þannig að endilega fylgist
með.
http://karitas.myphotoalbum.com/albums.php?set_albumListPage=1
»
22.03.2006 13:47:56 / Karitas
Hvað mundir þú gera ef þú sætir í vinnunni og
viðskiptavinurinn mundi skvetta kaffi í andlitið á
þér???
Þetta
kom fyrir mig í gær. Ég er heil á húfi en þetta tók svolítið á mig
andlega. Lögreglan var kölluð til og ég fékk að tala við
sálfræðing. Er smá dofin en þetta er allt að koma.

»
06.02.2006 22:51:06 / Karitas
Ég þarf ykkar hjálp.
Hvað á ég að gera við hárið á mér? Á ég að hafa topp eða ekki, á
ég að vera ljóshærð, skolhærð eða dökkhærð, á ég að vera með sítt
eða stutt hár.
Hjáááááá´lppppppp.......
»
02.01.2006 13:05:39 / Karitas
Látið á vaða vinir/ekki
vinir/kunningjar/ekki kunningjar/ þeir sem vita hver ég er
1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér? 5. Langar þig að kyssa
mig? 6. Láttu mig hafa gælunafn og
útskýrðu afhverju þú valdir það. 7. Lýstu mér í
einu orði. 8. Hvernig leist þér á mig
þegar þú sást mig fyrst? 9. Lýst
þér ennþá þannig á mig? 10. Hvað
minnir þig á mig? 11. Ef þú gætir gefið
mér eitthvað hvað myndi það
vera? 12. Hversu vel þekkiru
mig? 13. Hvenær sástu mig
síðast? 14.
Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en
ekki getað það? 15. Ætlaru að setja
þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um
þig?
bíð spennt...... 
»
01.01.2006 20:54:31 / Karitas
Hæ allir
saman og gleðilegt ár. Vonandi höfðu allir það gott yfir
jólin og áramótin, það gerði ég allavega. Vorum í fyrsta
skipti heima hjá okkur á aðfangadagskvöld og það var algjört
æði. Vorum með pabba hans Kristmanns hjá okkur. Vorum með
hamborgarahrygg namm og möndlugraut í forrétt (höldum að
pabbi hans Kristmanns hafi gleypt möndluna, allaavega fundum
við hana aldrei ). Hehe...
Brynjar Már
hafði ekkert voðalega mikinn áhuga á pökkunum fyrr en ég var búin
að opna þá fyrir hann þá varð hann alveg óður að leika sér með nýja
dótið. Enda var hann orðinn vel þreyttur kl. 9 þegar hann fór loks
að sofa.
Í
gærkvöldi vorum við í Gbæ hjá p og m. Vorum þar um 15 alls, var
ekkert smá gaman, borðuðum geggjaðan mat, grillað læri að hætti
pabba og sósu með að hætti Gilla "frænda" . Svo ákváðum við á
síðustu stundu að fara á brennu með Brynjar Má með okkur og hann
hefur held ég aldrei skemmt sér eins vel. Þegar flugeldasýningin
var þá klappaði hann bara og klappaði, það voru allir í
hláturskasti yfir honum, algjör snúlli .
Svo
þegar við komum af brennunni ætlaði ég að láta hann fara að sofa en
hann tók það sko ekki í mál, þannig að hann kom framm og horfði á
skaupið með okkur og borðaði fullt af ís (uppáhaldið hans).
Heyrðu svo bara kom hann með okkur út og var með í öllu fjörinu um
miðnætti, horfði bara upp í loftið á öll ljósin og var sko ekkert
hræddur, eitthvað annað en ég hélt. Hélt hann yrði skíthræddur við
lætinn en nei, hann er sko ekkert smá duglegur. Svo komum við inn
og þá stóð hann við stofuborðið með snakkskál fyrir framan sig og
var sko aðal skemmtiatriðið til kl. 1, þá fór hann að sofa enda
orðin vel þreyttur. Ótrúlegur 
Annars er gott
að frétta, er að vinna á fullu og Brynjar Már er rosa ánægður hjá
dagmömmunni. Allt gengur rosa vel.
Jæja ætla að
láta þetta nægja í bili, ætla að horfa á
"Dís".
Hafið það
gott.
KariTas
»
21.10.2005 08:55:44 / Karitas
Vá hvað
maður er orðin gamall. Ég vaknaði í morgun og kíkti beint í
spegilinn og ath hvort ég væri ekki örugglega alveg eins og
ég var í gær. Jújú mér til mikillar hamingju þá var ég bara
alveg eins, engin hrukka komin eða grátt hár. Þannig að ég
ætla að njóta dagsins rosalega vel í dag og brosa allan
daginn í hring.
»
06.10.2005 11:19:58 / Karitas
Haldið
þið að mín sé ekki bara að fara til Köben eftir viku. Ég og
mamma ætlum að fara í verslunarferð, ætla að kaupa jólagjafir
og fullt af fötum á Brynjar Má í H&M. Ohhh get ekki
beðið. Það verður samt hrikalega skrýtið að fara frá Brynjari
Má í 3 nætur, hef aldrei verið frá honum svona lengi. En ætli
maður hafi samt ekki bara smá gott af því.
Svo er ég að
byrja að vinna eftir rúman mánuð aftur, það verður fínt. Er orðin
smá leið á að vera svona heima allan daginn.
Finnst ykkur
ekki skrýtið að það sé komin október, það er alveg að koma jól. Ég
er ekki að fatta þetta, mér finnnst svo stutt síðan við vorum með
Brynjar Má pínulítinn síðustu jól. Ótrúlegt, hvað getur maður gert
til þess að þetta líði ekki svona hratt. Mér finnst tíminn bara
fara hraðar og hraðar 
Jæja veit ekki
hvað ég á að segja meira.
»
25.09.2005 14:13:35 / Karitas
Já, ég
var klukkuð. Þórey og Fanney klukkuðu mig .
Hér
koma 5 staðreyndir sem fáir vita um mig:
1)
Ég ELSKA gulrætur, þessar
litlu snakk gulrætur. Ég get klárað heilan svoleiðis poka fyrir
framan Tv.
2)
Ég er HRIKALEGA lofthrædd,
finnst rosalega óþæginlegt að horfa niður úr mikilli hæð, þá ýminda
ég mér alltaf að ég sé að detta niður og ef ég ditti nú niður. Þarf
ekki að vera hátt.
3)
Ég HATA að þrífa
baðherbergið og þá sérstaklega klósettskálina,
jakkk......
4)
Ég er með tvö stór ör sitthvoru megin við magann (á hliðunum
semsagt) eftir að ég var mjög veik þegar ég var
lítil.
5)
Ég og Eva vorum með kaffihús á Garðatorgi þegar við vorum 14-15
ára. Seldum vöfflur með rjóma og fleira.
Jæja, nú ætla
ég að klukka Elvu Björk og Guðrúnu Höllu.
»
16.09.2005 14:13:01 / Karitas
Endilega
takið þátt í smá prófi, hvað vitið þið mikið um
mig?
Það
er neðst á síðunni :haha:
»
Síður: 1 2 3
|
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 19 september
|